ég verð bara að fara að gera eitthvað...ég verð að fá mér vatn?!
15.09.2006 17:57:41 / gullpull

Biluð...?

...jább ég mundi segja það...

sem dæmi má nefna að ég og mamma vorum í kasti áðan yfir stafsetningarvillu í uppskriftabókinni hennar;)

...ég fékk sendann poppmaís í gær....

það var besta sending sem ég hef fengið á árinu...8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 18:00:48 / gullpull

sko...

ég er svoo ekki búin að vera að nenna þessu... :S en ég hef margt að segja og fyrst af öllu er það besta sem skeður síðan ég kláraði grunnskóla... dudduruduu ég á bara eftir að vinna 6 daga í viðbót og þá losna ég loksinns úr þrælakistunni...:D ég og Magga skelltum okkur á barinn á laug. sjitturinn titturinn hvað það var gaman ég var í hláturskasti eiginlega allann tímann sökum mikilla danshæfileika frænku minnar:haha: gleraugun hans Tóta gerðu gæfumuninn8) enda trylltist stúlkan eftir að hafa sett þau upp :D sem og flestir karlmennirnir á svæðinu hehe... hún magga...hún er alveg milljón.. þegar barnum var lokað þá fóru flestir sem þar voru..jafnt ungir sem aldnir bakvið kaupfélagið og sungu hátt og snjallt8)... ég er samt ekki viss um að það hafi vakið mikla lukku hjá þeim sem búa í nágrenninu... að vera vakin við fjöldasöng klukkan 04:30 um morguninn hehe ég og Katla ræddum líka liðna tíma og fundum það út að við værum eiginlega bara alveg til í 10. bekk aftur... gunnar og villi og höskuldur að éta glossið hennar kötlu8|... lísa og karen að missa sig yfir loga á brauðbílnum... sjitt þetta var gott ár:D England er bara alveg að bresta á og MJÖG margir sem vilja helst bara koma með... reykjavík á föst eftir tvær vikur...fer með þeim eldgömlu:) er eiginlega líka að spá í að biðja afa gamla að skuttla mér til kef ég nenni eiginlega ekki að taka rútu... ég er farin að hlakka svoo til og kvíða líka svoo fyrir :S en gaman verður þetta

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 21:29:41 / gullpull

jaá...

... það er orðis aansi langt síðan síðast jújú það mundi vera rétt... ég er ónýtt barn ég er að drepast úr brjáluðu ofnæmi... kannski það hafi ekki verið besta hugmyndin að fara í berjamó í gær een puunktar puuunktar

  • kreisí bæjarhátíð um síðustu helgi
  • blindfull ráfandi um bæjinn
  • nei það er lygi ég ráfaði bara
  • ég drakk skemmtilega græna áfengið sem var í sæðinu
  • ekki ein samt Halli var geim
  • og já hann er óléttur eftir mig
  • haha hann fær að ganga með og fæða
  • amma var brjáluð..að vanda og tók með sér þrjá bjóra
  • ég var ein heima... það var ekki gaman allavega ekki þegar það áttir að vera gaman

ég og Gyða fórum í berjamó í gær ég RÚLLAÐI niður brekku afturabak...mjög fyndið hehe og síðast en ekki síst þá er hann Sindri minn farinn úr firðinum fagra


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 13:11:43 / gullpull

hvað segiru viltu beiskann

viltu beiskann?!?8) er klárlega setning helgarinnar;) hehe ásamt kannski öllum einkahúmornum okkar Öldu sem enginn var að skilja;) en já ég semsagt kíkti á Láruna með Jóni og hitti Öldu og fleira fólk...svo kom líka Lovísa með helvítis kallinn...sem hún var gay fyrir því hann týndist á seyðófirði og hann var alveg að kafna(svo ekki sé meira sagt) úr aðdáun á Öldu... jájá svo kom Ösp mín líka, en svo enduðu allir í botnahlíð 6 þar sem byrjað var á að skúra gólfin... Aldeilis dugleg hún Sigfríð...;) heheh svo vaknaði einn kallinn sem á heima þarna og spurði hvern fjandann við værum að gera þarna og svarið var "uuu við erum ráðskonurnar ykkar;)"


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 14:35:24 / gullpull

AKUREYRI

Föstudaginn 4. ágúst 2006 héldu þrjár föngulegar stúlkur af stað í helgardvöl á Akureyri... en ekki gekk nú allt að óskum hjá þeim... fyrst þá bilaði bíllinn hennar Kötu en það var nú hægt að redda því... við fengum bara Runó lánaðann í staðinn8) en hann var nú ekkert til að hrópa húrra yfir.  við komumst bara rétt framhjá Fellabæ.8|  Þá alltíeinu kom svona hnugg8|(hnykkur) eins og dekkið hefði sprungið... og við henntumst allar út til að athuga málið og þar var ekkert að sjá:S þannig að það eina í stöðunni var að skella sér aftur inní bíl og halda áfram en það var samt eitthvað að því það var einhverskonar surgandi hljóð svoleiðis að við stoppuðum aftur og komumst að því að það rauk úr druslunni og kallinn sem stoppaði líka fann það út að þetta væri brotin lega eða eitthvað álíka.. og þá urðum við að sætta okkur við að komast ekki strax en það var alltílagi við héldum bara til hjá Helgu meðan það var verið að gera við bílinn en bilunin reyndist svo vera í demparadótaríi og það var ekki til varahlutur þannig að gert var við til bráðabirgða... svo seint og  síðarmeir þá komumst við af stað. þetta var bara fyrsta óhappið8|:!:

 loksinns lenntum við á Akureyri og byrjuðum á að kaupa okkur eitthvað að eta og fórum smá rúnt en sökum þreytu fórum við snemma í háttinn en það hafði ekkert klikkað síðan þetta með bílinn og vorum við orðnar gríðarlega bjartsýnar á framhaldið... en allt kom fyrir ekki... þegar kata var í sturtu þá flæddi vatn um allt... vegna þess að niðurfallið var stíflað dásamlegt:^) ekki satt? en það hindraði ekki gleði okkar svoleiðis að við fórum bara í bæjinn og báðum um plömmer til að laga þetta...  sem kom um kvöldið og bjargaði okkur... á laugardagskvöldið ætluðum við að hitta Herdísi, Mikka og Þurý.. en snilllingurinn ég datt og meiddi mig í fætnum;) þannig að pabbi hans Heimirs skuttlaði mér heim í leiðinni þegar hann skuttlaði Þurý... og ég fór eað horfá tv og Kata og ösp í bæinn að jamma... um klukkan fimm kom Kata heim... og hún var ekki ein seisei nei úúúú:haha: svo stuttu seinna kom ösp en við fórum svo bara að sofa og Kata og gesturinn voru í sófanum úbbúbúbb;) á sunnudeginum ákváðum við að fara og finna okkur einhvern stað til að snæða morgunmat þegar kata mundi að hún hafði séð að dekkið var sprungið... við báðum einhvern kall að hjálpa okkur...sem hann jú gerði... og við fórum í dekkjahöllina þar sem gert var við dekkið og dáðst að hreinu umhverfi innandyra í dekkjahöllinni...;) en allt reddaðist svo um kvöldið fórum við að horfa á flugeldasýninguna og þá sáum við að annað dekk var sprungið... semsagt tvö á einum degi8| en það reddaðist líka en ösp ákvað að drífa sig í bæinn en við vorum ekki alveg tilbúnar til að fara með henni þarsem við vorum lemstraðar eftir tívolítæki frá helvíti.. en um kl fimm um morguninn kom ösp heim frekar illa til reika þarsem símninn hennar var týndur... á mánudagsmorgunn sváfum við yfir okkur og tókum til á milljón og komumst heim áfallalaust um hálffjögur8) ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 19:27:55 / gullpull

hohoh

Hljómsveitin SigurRós heldur tónleika á Seyðisfirði annað kvöld, fimmtudagskvöldið 3. ágúst.  Tónleikarnir verða á Miðbæjartorginu...hahahaha ekki oft sem maður heyrir talað um torgið sem Miðbæjar:haha:

Börnin á Leirubakka 3 eru búin að fá trampolín;) eitthvað það skemmmtilegasta sem hefur rekið á fjörur mínar... mamma fór áðan að prufa og var álíka glæsileg og soffía frænka;) sem er mjög glæsileg á trampó;)

jæja verð að þjóta... listagyðjan kallar;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 18:04:48 / gullpull

pUlsupartý, barferð, almásttugur ufsi, sagðiuppvinnunni ;D

Pulsupartý ala Leirubakki 3 var í gær... mjög skemmtilegt mikið ruglað og hlegið... og jiminn BORÐAÐ8| en það er nú ekki margt sem jafnast á við pulsuveislu þar sem L3 og F3 koma saman;) svo eftir langa mæðu enduðu ég frú S og herra G og Jóhanna;) sumir í verra ástandi en aðrir8) á Láru... þar fundum við föngulegann hóp fólks;) og annann  miður geðslegann mann en nefnum samt engin nöfn... en gaman var það... Udda poppins steig trilltann dans... og gamli gamli Kle sat á stól útí horni og sló taktinn8)...

Vinnan fer að fara í frí... og ég er búin að segja upp og 20. september mun verða síðasti dagurinn minn í fiskvinnslunni... og mun ég verða fjarverandi í óákveðinn tíma...  ég fór að vinna í gær Á LAUGARDEGI hvað ER það?!? neinei það er ágætt meiri péningar fyrir verslunarmannahelgina;) en ég semsagt fór til Sigríðar og Jörfa á föstudagskvöld klukkan eitt eða eitthvað... það var allavega seint... svo um kl tvö var haldið á Láru... var nú ekki mjög lengi þar sökum þreytu og slæmum hugsunum um  vinnu daginn eftir hehe en Udda var svo væn að sköttla mér heim... þriggja tíma svefn fyrir vinnu er klárlega EKKI málið...hélt til vinnu kl 6.30 og vaknaði ekki fyrr en kl 11 og þá fékk ég svefngalsa og var meira klikkuð en venjulega hehe og svaf af mér mestallann laugardaginn...


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 14:30:36 / gullpull

tónleikar, tedrykkja, glerbrot, svefnleisi, vesen, og smjatt.... :D

Flotturstu tónleikar ársinns á seyðófirði í kveld... :D:D þetta verður snilld... verð endilega að drífa í að kaupa miða á eftir... langar samt bara eiginlega að sjá Jeff Who?, Ampop og Fræ... er ekki viss um að geta haldið út í sex tíma takk fyrir8| en sjitt maður(eða kona;))ég slagsmálahundurinn sjálf vær næstum lent...(alveg óvart samt) í alveg heví slag fyrir utan Láru...löggan kom bara og allt var kreisí.. og einhver henti í mig glasi og ég var öll útí glerbrotum... en svo sá ég Bjössa tvíbb og gaf honum öll glerbrotin ég er viss um að honum hefur fundist eins og jólin væru komin:) gjafmildin alveg að fara með mig:) jájá... svo er planið nú að fara til gullu að drekka té...þegar Jeff who?, Ampop og fræ eru búin... og á meðan Ösp fer í sturtu og gerir sig sæta og solleis;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 15:32:16 / gullpull

µ@%&$#

ég á tvo aukadaga í helgarfrí því enginn er fiskurinn... svona er nú gott að Sandra og Valla eru fiskvinnslukéllingar... þær redda málunum alveg...;)

Svo er nú bara planið að fara í road trip til Akureyrar... um verslunarmannahelgina með auði og kötu... og kannski jóni...held hann sé samt ekki að fíla að vera með okkur heila helgi:D skil hann alveg því þar sem ég er, er talað útí eitt... 8| jesú hvernig verður það þá þegar það verða bæði ég og kata til að tala fokk... best að taka æpott með... og sjitt hvað ég ætla að sofa alla leiðina norður og hlusta á æpott....8)

en annars þá er nú komið á hreynt að ég fer til uk 26. sept.. er samt ekki búin að panta far en það getur nú ekki gert mikið til... pannta bara í ágúst nógur tími til að gera þaað... en semsagt þá sendi ég  miss Rikki Boothby sms á föst. og tékkaði á málunum og komst að því að hún er að öllum líkindum búin að fá vinnu þannig að það er eins gott að allt fari að óskum...:D veit samt ekki hver vinnan er ég varð svo spennt að ég gleymdi að spurja8)

ösp og ég skelltum okkur í kvikmyndahús um helgina... og var það klárlega aulahrollur frá helvíti sem varð til af þeirri ferð... just my luck var myndin... hún  er fín, fæ bara alltaf svo mikinn aulahroll af svona chick flicks myndum

annars er ég bara að nördast eins og venjulga en´í dag er ég búin að vera að skoða einhverja svona síðu sem maður getur fundið út hvaða stjörnu maður líkist heheh

 

  • gulla vala er 71% lík Ashton Kutcher hahah;)
  • ösp 76% lík Renee Zellweger ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 20:39:29 / gullpull

:)

  • Magga borðaði hjá okkur og þarsem það er föstudagur voru að sjálfsögðu pulsur en hún semsagt fékk sér pulsubrauð og skar það og setti tómatsósu og tilheyrandi í brauðið þegar hún alltíeinu fattaði að brauðið var skorið á hinni hliðinni... þannig að hún hefði aldrei þurft að skera það til að byrja með:haha: elsku magga...;)
  • ég heyrði líka sögu af konu sem var blind og sá næstum ekkert:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 00:46:42 / gullpull

viltu rækju? :)

....uuu nei takk8|... ég mundi alltíeinu eftir þessu... :| þegar ég var að labba á torginu í bergen þá labbaði ég í gegnum svona fiskmarkaðstorg og þegar ég labbaði framhjá þá hljómaði þetta úr öllum áttum;) svo líka ha þegar við vorum að leita af bílastæði þá sá ég hann Alexaaander á ferðinni í bergen.... ég þekkti ljótu skóna hans sko;) heheh


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 20:34:40 / gullpull

nobody puts Baby in a corner

já þá er maður nú komin heim frá danó... og norge líka reyndar... ótrúlega er fallegt í noregi... og ótrúlega er ógeðslegt að ferðast í bíl þar sjitt hvað ég var stundum farin að óttast um líf mitt... En annars var bara alveg ótrúlega gaman;) hitta familíuna og svona... ég hitti líka hana Sanne sem var alveg ótrúlega gaman ;):haha: og ég fann alveg gríðarlega fyrir því hvað ég sakna allra mikið... hef allavega ekki grátið jafn mikið á tveim vikum nýlega... oog ég meiraðsegja bögglaðist við að tala dönsku við litlú krúttilegu frænkur mínar í danaveldi..;) svo var það hann Nikulás litli farinn að labba alveg og segja nokkur orð. Eftir viku í hita og svita og mikilli geðvonsku sagaði pabbi fótinn af mér...8) nei grín gipsið var sagað af með brauðsög...  en annars er nú ekki margt annað til að segja frá en jú annars þá held ég að ég hafi lært ótrúlega mikið um fólkið mitt og fattað afhverju við erum nú öll eins og við erum;) ekki veitti af segi ég bara

en núna er ég semsagt komin heim í fjörðinn fagra sem er sumarlega grænn of fallegur eins og við var að búast ekki satt?;) Reyndar hef ég aðrar mikilvægar fréttir sem ég held að tími sé kominn til að opinbera en ég komst semsagt aftur inn í iðnskólann... sem er nú bara alveg frábært finnst mér... en hinsvegar þá hef ég hugsað mér að afþakka og í staðinn mun ég halda til Englands þar sem ég hef hugsað mér að vera í óákveðinn tíma...ekki minna en 6 mánuði samt....

njótið


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 18:53:31 / gullpull

øøøøø

krakkar minir eg er her i hanstholm på sømandshjem og horfi a ferjuna okkar gullu medan eg blogga thetta blogg... jajaja er alveg ad fara ad koma bradum heim... jajaja en samt a eg eftri ad fara til norge heyja norge... og kupa dulitid handa engilrad og kannski sma handa mer og svo bara i ferjuna og heim en a morgun sko tha fer eg og hele familien til norge8) og folk nær og fjær eg pannta hitting thegar eg kem heim... og hana nu bara allur sem geta ad hittast og gera noget sjovt...konur og kallar ungir sem aldnir en eg a vist bara threttan min eftir thannig ad bæj en latid thad ganga um thid vitid hver thid erud hittingur thegar gulla kemur heim alltlæjbless

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:20:25 / gullpull

barnavesen

jájá þá er Danmörk alveg að bresta á og ekki svo langt þangað til ég fer aftur í rönkenmyndatökudæmerí og þá kannski losna ég vonandi nenni ekki að vera allann tímann í dk í gipsi ónei... jebbjebb ég er alveg ótrúlega spennt yfir beverly hills og melrose place... ég man hvað þetta var ótrúlega asnalegt einusinni er það kannski ennþá en alla vega þegar ég var lítil og þetta var á ríkis... ómægod hvað þetta var klárlega ekki kúl það eina sem virkaði í stöðunni þá var að slökkva á tv-inu og helst henda því líka:D een alltaf er mig nú að dreyma eitthvað undarlegt og í dag(jájá í dag ég hef ekkert betra að gera) þá dreymdi mig að hún Hrefna Bóel væri bara orðin mamma og ég og gulla fórum að kíkja á barnið... gerðum okkur ferð til rvk bara til að sjá barnið jájá svona er þetta... ok bæj

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 16:24:29 / gullpull

ojj

Held ég taki bara punktana á þetta

  • ég er fótbrotin...
  • og þarafleiðandi föst inni
  • það er gott veður ÚTI!
  • klipping á morgun
  • þá verð ég aftur ljóska
  • Danmörk eftir viku
  • og bless vonda fólk sem nennir ekki að hitta mig

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6